Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn Óskars Jónssonar f.h. stjórnar húsfélagsins Hvassaleiti 6-10 dags. 13. apríl 2018 ásamt greinargerð ódags. varðandi færslu á innkeyrslu lóðarinnar nr. 6-10 við Hvassaleiti um ca. fimm metra. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar samgöngustjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn samgöngustjóra dags. 16. maí 2018. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.