Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn
Bjarna Ólafs Eiríkssonar
dags. 21. janúar 2020 um stækkun hússins nr. 59 á lóð nr. 53-59 við Hvassaleiti sem felst í að byggja 30-40 m2 viðbyggingu á enda eða gafl hússins. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.7. febrúar 2020.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. febrúar 2020 samþykkt.