Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. apríl 2018 var lögð fram fyrirspurn Home Apartments ehf. mótt. 19. mars 2018 ásamt bréfi dags. 16. mars 2018 varðandi breytingu á byggingarreit lóðarinnar nr. 54-60 við Jörfagrund, fjölgun íbúða og færslu á bílastæðum, samkvæmt uppdr. Aðalsteins V. Júlíussonar dags. 15. mars 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2018.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2018.