Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Þorvaldssonar mótt. 12. mars 2018 um að skipta íbúð merkt 01 0201 í húsinu á lóð nr. 44 við Nökkvavog í tvær íbúðir, þannig að íbúð í kjallara fái sér fastanúmer. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2018.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. apríl 2018.