Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2018 var lögð fram fyrirspurn Ingunnar Helgu Hafstað mótt. 21. desember 2017 ásamt bréfi dags. 21. desember 2017 um að setja tvær svalir á norðurhlið hússins á lóð nr. 4 við Týsgötu og hurð út úr eldhúsi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2018.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.26. janúar 2018.