Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2017 var lögð fram fyrirspurn Ólafs Hjördísarsonar Jónssonar mótt. 13. nóvember 2017 ásamt greinargerð dags, 7. nóvember 2017 um að setja glerhýsi ofan á svalir hússins á lóð nr. 47 við Rauðagerði (götumegin). Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2017.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2017.