Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
VA arkitekta ehf.
mótt. 31. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóð Landsnets á Hólmsheiði, Hólmsheiðarvegur 151. Í breytingunni felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur fyrir geymsluhúsnæði sunnarlega á lóðinni, heimilt verði að girða bygginguna af með tveggja metra hárri girðingu og bílastæði verða færð til og þeim komið fyrir norðar á lóðinni , samkvæmt uppdr.
VA arkitekta ehf.
dags. 30. október 2017. Tillagan var auglýst frá 5. desember 2017 til og með 19. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.