Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 799
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Halls Kristmundssonar dags. 26. nóvember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholt 3, Fell vegna lóðarinnar nr. 7A við Völvufell. Í breytingunni felst breyting á notkun hússins úr skóladagheimili í vistheimili fyrir ungmenni ásamt færslu á lóðarmörkum til suður þannig að lóð minnkar um 500 m2, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 7.þ febrúar 2020.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Yrsufelli 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og 20.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.