Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 29. ágúst 2016, um nýtt deiliskipulag sem felst í að gerð er lóð undir innsiglingarvita við Sæbraut rétt utan við Höfða, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 2. mars 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2017. Tillagan var auglýst frá 24. mars til og með 6. maí 2017. Engar athugasemdir bárust.