Laugavegur 143 og 145
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 668
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Helga Mars Hallgrímssonar, mótt. 23. júní 2017, um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar 143 og 145 við Laugaveg. Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að færa húsin nær upphaflegri hönnun húsanna og um leið að fjölga íbúðum í húsunum. Tillagan gengur út á að rífa núverandi rishæðir, hækka húsin um eina hæð og byggja nýja rishæð þar ofan á ásamt því að reisa nýja viðbyggingu við Laugaveg 145, skv. deiliskipulagsuppdrætti Arkþings ehf. dags. 29. september 2018 og skuggavarpi dags. 29. september 2017 br. 29. janúar 2018. Einnig er lagður fram samningur eigenda vegna umsóknar um deiliskipulagsbreytingu, dags. 1. október 2016. Tillagan var auglýst frá 20. október 2017 til og með 1. desember 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Anna Pála Pálsdóttir, dags. 25. október 2017, Einar Nikulásson, dags. 20. nóvember 2017, Kristján Bjarni Jóhannsson f.h. húsfélags Laugavegi 147, dags. 28. nóvember 2017 ásamt viðauka. Einnig eru lögð fram aukaskjöl-skuggavarp dags. 29. janúar 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2017 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102861 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018256
Síðasta markaðsverð
49.900.000 kr.
Fjölbýli · 48 m² · 16.12.2024
Kaupskrá 11 eignir
49.900.000 kr. 16.12.2024
Fjölbýli · 48 m² · 1 herb. · bygg. 1935 · HMS
49.900.000 kr. 24.03.2021
Fjölbýli · 70 m² · 2 herb. · bygg. 1935 · HMS
49.900.000 kr. 24.03.2021
Fjölbýli · 70 m² · 2 herb. · bygg. 1935 · HMS
39.900.000 kr. 12.03.2021
Fjölbýli · 57 m² · 1 herb. · bygg. 1935 · HMS
42.900.000 kr. 10.03.2021
Fjölbýli · 56 m² · 1 herb. · bygg. 1935 · HMS
… og 6 eignir til viðbótar
Deiliskipulag
Deiliskipulag stgr. 1.240, Hlemmur og nágrenni og Hlemmur, umferðarskipulag
Samþykkt 19.03.2020 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag