Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Fasteignafélagsins Langeyri ehf. dags. 15. janúar 2020 um rekstur veitingastaðar á jarðhæð hússins á lóð nr. 14 við Frakkastíg, fnr. 2006236. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020.