Lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 8. maí 2017, ásamt yfirlýsingu frá forráðamanni bílaleigunnar Berg ehf. þar sem óskað er eftir endurskoðun á umsögn um að reka ökutækjaleigu að Fiskislóð 18. Sótt er um leyfi fyrir allt að 50 ökutækum í útleigu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 12. maí 2017
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2017.