Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Finns Þ. Erlingssonar, mótt. 13. mars 2017, varðandi byggingu bílskúrs á lóð nr. 41 við Rauðalæk. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. mars 2017.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2017 samþykkt. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.