Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvær íbúðir sem nota á sem gistiíbúðir í flokki II tegund G og koma fyrir svefnherbergjum í kjallara í húsinu á lóð nr. 37 við Sóleyjargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2017. Gjald kr. 11.000
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2017 samþykkt.