Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. apríl 2020 var lögð fram fyrirspurn
Klitts ehf.
dags. 8. apríl 2020 um stækkun hússins á lóð nr. 16 við Vitastíg sem felst í að gera viðbyggingu/bíslag við gafl hússins og færa núverandi stiga sem er í húsinu í viðbyggingu/bíslag, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi dags. 7. apríl 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020.