Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að setja tvær hurðir á vesturhlið kjallara, stækka svalir á 2. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum svölum á 2. hæð vesturhliðar á húsi á lóð nr. 42 við Sólheima. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykki meðeigenda fylgir erindi dags. 21. janúar 2018. Bréf frá hönnuður vegna breytingar á umsókn dags. 31. júlí 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Lagfærð bókun frá embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 31. ágúst 2018.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Sólheimum 40 og 44 en ekki Ljósheimum 40 og 44.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016..

104 Reykjavík
Landnúmer: 105320 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019386
Síðasta markaðsverð
124.500.000 kr.
Fjölbýli · 187 m² · 31.07.2024
Kaupskrá 3 eignir
124.500.000 kr. 31.07.2024
Fjölbýli · 187 m² · 5 herb. · bygg. 1961 · HMS
28.500.000 kr. 11.11.2016
Fjölbýli · 70 m² · 1 herb. · bygg. 1961 · HMS
19.500.000 kr. 03.06.2015
Fjölbýli · 43 m² · 1 herb. · bygg. 1961 · HMS
Deiliskipulag
Álfheimar
Samþykkt 03.02.1956 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag