Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 644
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, mótt. 10. mars 2017 um breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 14 við Grandagarð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri timburbryggju fyrir gesti fyrirhugaðs veitingastaðs á 1. og 2. hæð. Utan á timburbryggjunni er gert ráð fyrir flotbryggju sem slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur afnot og aðgang að, samkvæmt uppdr., dags. 3. apríl 2017. Einnig lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 23. nóvember 2016. Tillagan var auglýst frá 20. júní til og með 1. ágúst 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.