Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. október 2016 var lögð fram fyrirspurn Kristínar Bjargar Viggósdóttur, mótt. 11. október 2016, um að setja kvist á norðurhlið hússins á lóð nr. 31 við Hrísateig. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2016.
Svar
Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi, skv.umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2016.