Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar H. Jóhannssonar, mótt. 24. ágúst 2016, um að setja svalir á húsið á lóð nr. 16 við Kvisthaga, samkvæmt skissu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.