Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. október 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2016 þar sem sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á endaraðhúsi á lóð nr. 11 við Heiðargerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. október 2016.. Stækkun: Eldra anddyri A-rými 6,25 ferm., 16,38 rúmm. Nýrri viðbygging A-rými 12,09 ferm., 32,64 rúmm. C-rými 12,09 ferm. Bréf hönnuðar dags. 23.09.2016 fylgir erindi, ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26.09.2016. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa við fyrirspurn BN051633 dags. 03.08.2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 27. október 2016.