Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 744
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 19. ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 7 við Klettagarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er minnkaður og færður til suðvesturs og aðkoma á norðvesturhluta lóðar færist til norðausturs samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta dags. 19. ágúst 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 2, 4, 9, og 11 og Sundagörðum 1, 3 og 5.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.