Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 639
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 24. ágúst 2016, um breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegur-Hallar vegna Lambhagavegar 12 og 14. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að fyrirkomulagi byggingareita á lóðum 12 og 14 við Lambhagaveg er breytt og heimilt byggingarmagn minnkað og nýtingarhlutfall því samhliða. Jafnframt er lóð spennistöðvar færð innan skipulagssvæðis og innkeyrslur á lóðir færðar, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. , dags. 26. apríl 2017. Tillagan var auglýst frá 16. maí 2017 til og með 27. júní 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar