Á fundi skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016 var lögð fram fyrirspurn
Pálma ehf.
f.h. Jóns Guðmundssonar, dags. 7. júní 2016, um breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 78 - 92 við Haukdælabraut. Í breytingunni felst færsla á lóðarmörkum og breytingu á hæðarsetningu húsanna, samkv. teikningum Jóns Guðmundssonar dags. 10. maí 2016. Fyrirspurn var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2016.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2016 samþykkt. Vakin er athygli fyrirspyrjanda á að erindið fellur undir gr. 7.6 og 8.1 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg 1111/2014.