Á fundi skipulagsfulltrúa 20. maí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. maí 2016 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta verslun í skjala- og bókasafn á jarðhæð í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 87 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. maí 2016.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2016.