Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, mótt. 23. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 2 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og aukning á byggingarmagni á reit A, samkvæmt uppdr. 
        
ALARK arkitekta ehf.
        , dags. 22. desember 2016. Einnig er lögð fram greinargerð 
        
ALARK arkitekta ehf.
        , dags. 22. desember 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.