Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn
ASK Arkitekta ehf.
dags. 28. febrúar 2019 ásamt bréfi dags. 28. febrúar 2019 um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 7 við Úthlíð, setja kvisti og svalir á þakið og útbúa sér íbúð í risi, samkvæmt uppdr.
ASK Arkitekta ehf.
dags. 27. febrúar 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. mars 2019.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. mars 2019 samþykkt.