Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. júní 2016 þar sem sótt er um leyfi byggja svalir á norðurhlið, breyta innra skipulagi og innrétta tvær íbúðir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 7A við Baldursgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 4. ágúst til og með 1. september 2016. Engar athugasemdir bárust. Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn sama efnis , BN05062 dags. 22. mars 2016 og samþykki meðeigenda dags. 27. febrúar 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.