Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. apríl 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvisti á suður og norður hlið og anddyri á vesturgafl einbýlishúss á lóð nr. 89 við Háagerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2016. Erindi var grenndarkynnt frá 25. apríl til og með 23. maí 2016 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 28. apríl er erindi nú lagt fram að nýju Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2016 og bréf þar sem óskað er grenndarkynningar á byggingarleyfisumsókn. Stækkun: 10,2 ferm., 4,9 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.