Á fundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015 var lögð fram fyrirspurn Leifs Rögnvaldssonar, mótt. 29. september 2015, um að breyta rishæð hússins á lóð nr. 36 við Rauðarárstíg í íbúð, setja kvisti á þak til suðurs og norðurs og setja þakglugga. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2015.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2015 samþykkt.