Á fundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Ásgeirssonar, mótt. 14. desember 2015, f.h. knattspyrnufélagsins Valur um að reka samkomusal í húsinu á lóð nr. 6-10 við Hlíðarenda og veita eða selja veitingar í flokki III með opnunartíma til kl. 01:00 virka daga og til kl. 03:00 um helgar. Starfsemin fer fram í veislusal á 2. hæð sem er afmarkaður frá annarri starfsemi hússins, samkvæmt uppdr.
Alark arkitekta ehf.
, dags. 14. desember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 1. febrúar 2016.