Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Egilsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 24. júlí til og með 22. ágúst 2015. Engar athugasemdir bárust. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.