Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Björns Valdimarssonar, mótt. 13. apríl 2016, um að byggja gestahús/vinnustofu í bakgarði lóðarinnar nr. 15 við Bergþórugötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2016.
Svar
Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2016.