Skildinganes 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 539
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Grétars Sigfinns Sigurðssonar dags. 26. mars 2015 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags lóðarinnar nr. 2 við Skildinganes. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og niðurfelling á kvöð um bifreiðageymslu, samkvæmt uppdr. A2f arkitekta ehf. dags. 26. mars 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. apríl til og með 14. maí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Höskuldur H. Ólafsson og Sigríður Ólafsdóttir dags. 13. maí 2015, Ingibjörg Briem og Páll Einarsson dags. 13. maí 2015, Bryndís Blöndal dags. 13. maí 2015, Gunnar Snorri Þorvarðarson, Hjördís Logadóttir, Ægir Þormar Pálsson og María Sveinsdóttir húseigendur Bauganesi 4 dags. 14. maí 2015 og Kristján B. Jónasson og Gerður Kristný Guðjónsdóttir dags. 14. maí 2015. Einnig er lagt fram skuggvarp A2f arkitekta ehf. dags. 21. maí 2015.
Svar

Samþykkt að framlengja grenndarkynningu til 2. júní 2015, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

102 Reykjavík
Landnúmer: 213787 → skrá.is
Hnitnúmer: 10117043
Síðasta markaðsverð
91.500.000 kr.
Einbýli · 174 m² · 04.04.2017
Kaupskrá 1 eign
91.500.000 kr. 04.04.2017
Einbýli · 174 m² · 3 herb. · HMS
Deiliskipulag
Skildinganes
Samþykkt 24.02.2004 · Deiliskipulag. Nýtt DSK