Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 2. desember 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu við einbýlishús á lóð nr. 29 við Bergstaðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.12. desember 2014..
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2014.