Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. ágúst 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á byggingum á lóð nr. 158 við Sogaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2019. Gjald: 11.200 kr.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2019.