Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Jeannot A. Tsirenge dags. 27. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits vegna lóðarinnar nr. 51 við Njálsgötu. Í breytingunni felst stækkun á norðurhorni 2. hæðar hússins, samkvæmt uppdr. Jeannot A. Tsirenge arkitekts dags. 5. maí 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. maí 2019 til og með 25. júní 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar