Á fundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2014 var lögð fram fyrirspurn Skúla Gunnars Sigfússonar dags. 2. júlí 2014 varðandi veitingaleyfi í húsinu á lóðinni nr. 28 við Klapparstíg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2014.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2014 samþykkt.