Á fundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist götumegin á þrjú herbergi götumegin á þak hússins á lóð nr. 3 við Rauðarárstig. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2014.
Svar
Jákvætt, með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2014.