Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helgu Jónsdóttur og Laufeyjar Hjálmarsdóttur, dags. 16. júlí 2014 að breytingu á deiliskipulagi "Teigagerðisreits" fyrir Steinagerði 6 og felst breytingin í að færa byggingarreit sem heimilar stækkun hússins frá vesturhlið yfir á suður hlið þess, skv. uppdrætti Arkís, dags. 16. júlí 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. júlí til og með 25. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar