Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvisti á norður- og suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 70 við Miklubraut. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 14. júlí til og með 11. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda í júní 2014. Stærðir stækkun: xx ferm. xx brúttó. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.