Á fundi skipulagsfulltrúa 28. mars 2014 var lögð fram fyrirspurn Þórdísar Jóhannsdóttir Wathne dags. 25. mars 2014 um að skipta húsinu á lóðinni nr. 8 við Lambasel í tvær íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. apríl 2014.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. apríl 2014. Samræmist ekki deiliskipulagi svæðisins.