Á fundi skipulagsfulltrúa 28. mars 2014 var lögð fram umsókn
Faxaflóahafna sf.
dags. 21. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 11 við Klettagarða. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr.
Ask arkitekta ehf.
dags. 12. mars 2014. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 9 og 13.