Á fundi skipulagsfulltrúa 13. mars 2015 var lögð fram fyrirspurn
Mansard - teiknistofu ehf.
dags. 13. mars 2015 varðandi lagfæringu á útreikningi nýtingarhlutfalls lóðarinnar nr. 42-44 við Friggjarbrunn og 14-18 við Skyggnisbraut, samkvæmt uppdr.
Mansard - teiknistofu ehf.
dags. 6. febrúar 2014 leiðréttur 12. mars 2015. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard - teiknistofu dags. 13. mars 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.