Á fundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að innrétta gistiheimili í flokki II með 14 gistirýmum í húsinu á lóðinni nr. 53 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2013. Gistiheimilið verður rekið í samvinnu við fyrirhuguð gistiheimili að Vatnsstíg 8 og 10B og Hverfisgötu 55. Næturvarsla og þjónusta við gistiheimilin verður staðsett að Vatnsstíg 10B. Gjald kr. 9.000
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2013.