Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 8. júlí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja tvo kvisti á fjölbýlishús á lóð nr. 12 við Njálsgötu. Einnig eru lagðir fram nýjir uppdr. dags. 11. apríl 2014, br. 1. júlí 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 28. júlí til og með 25. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. júní 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2014. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 12. apríl 2014. Stækkun: 44,5 ferm., 52 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.