Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. apríl 2015 þar sem sótt er um leyfi til að rífa mhl. 02 og byggja steinsteypta tveggja hæða viðbyggingu og innrétta gististað í flokki III teg. gistiheimili fyrir 38 gesti í húsi á lóð nr. 14 við Hrísateig. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2015. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 10. febrúar 2015 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 16. febrúar 2015. Niðurrif: 41,4 ferm., 103,5 rúmm. Stækkun: 300,6 ferm., 954,5 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 16. apríl 2015