Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að gera flóttasvalir og björgunarop á framhlið ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi á 4. hæð núverandi gististaðar í húsi á lóð nr. 2A við Grettisgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 21. febrúar 2018 til og með 21. mars 2018. Engar athugasemdir bárust. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.