Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Vektors, hönnun og ráðgjöf ehf dags. 5. júní 2020 um að setja djúpgáma í norðvesturhorn lóðarinnar nr. 78 við Vesturberg, samkvæmt tillögu/skissu að staðsetningu djúpgáma ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2020.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. júní 2020 samþykkt.