Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Marksim Akbachev, mótt. 17. maí 2017, um að setja kvisti og stigahús á húsið á lóð nr. 20 við Sólvallargötu, samkvæmt uppdr. Á stofunni arkitektar ehf., dags. 8. maí 2017. Einnig er lagt fram bréf Á stofunni arkitektar ehf., dags. 17. maí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2017.