Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Regins ehf. dags. 28. júní 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúns, reitir 1.217 - 1.219 vegna lóðarinnar nr. 33 við Borgartún. Í breytingunni felst að byggingarreitur er dýpkaður um 6 metra til norðurs, samkvæmt uppdrætti T. ark dags. 28. júní 2011. Erindið var grenndarkynnt frá 6. júlí til 3. ágúst 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.